Úber hressar og klikkaðar Stínur

Hressar ofurskutlur baby

11.10.2007 23:23:17 / Alma

jamm allt að gerast í lífinu bara

Mér líður nú eitthvað hálf asnalega að vera að koma með eitthvað shit núna, finnst mjög ólíklegt að einhver líti hér við lengur... og er blog central ekki bara útdautt eða.... myspace er að taka völdin skilst mér..... ;)

 

Er enn að að vinna á Zone en ætli maður fari ekki að hætta þar og finna sér eitthvað annað..... endilega að láta mig vita ef þið vitið um vinnu!!!!

Kallinn alltaf að meika það og er búinn að næla sér í yfirþjónastöðu á Karólínu og fílar það í botn..... besti maturinn á ak án efa :D og ég er bara að rotna, hausinn á mér snýst svona þúsund hringi á dag, ekki frá því að maður sé að verða hálfkreisí!!!!

Þarsíðasta föstudag beið mín steik, rauðvín, kampavín og allt tilheyrandi, kertaljós og rómantík þegar ég kom heim úr vinnunni.... og eitt stykki farmiði til BARCELONA takk fyrir takk... gerir aðrir betur :D:D:D

ÆHH ætlaði bara smá að láta vita af mér.... heyrumst :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 22:52:12 / Alma

vinna vinna... chill... djamm eða bara eitthvað :)

Allt að gerast bara... eða svona næstum því......

Þá erum við hjúin loksins flutt norður og það er náttlega bara snilld, gæti ekki verið betra, norðurlandið er BEST :haha: Við erum búin að koma okkur fyrir hjá tengdó, eða koma okkur fyrir, erum eitthvað löt við þetta... enn dót út um allt í töskum og kössum :lol: Ég bíð bara eftir að húsið verði klárt hjá mö og pa, heyrist að þetta sé allt að smella, snilld 8)

Ég er farin að vinna á fullu á Zone... ef á fullu má kalla það, sópa, þrífa, þvo og lita... hehe nei nei það er farið rosa vel með mig og ég er að læra helling, og Haraldur minn farinn á fullt í átvr... snillingur í vínum :D Ein bekkjarsystir mín ákvað að flytja norður og er farin að vinna á art... það er náttlega bara snilld!

Sjómannadagurinn næstu helgi...  mikið um að vera, verð sennilega að greiða og læti síðan er bara tjútt á grenó jeiiiii :haha:

Það fer að líða að Hríseyjarferð hjá okkur Haraldi, ógleymanlegt hjá okkur í fyrra, afslöppun og aftur afslöppun með gott rauðvín og heitan pott ;)

Framundan eru nokkur ættarmót... úff fullmikið af því góða en síðan verður farið til Tenerife í ágúst.... mikil tilhlökkun í gangi jeiiii :haha:

Jæja er hætt að bulla og svoltið mikið af brosköllum hehe.. skiljiði smá kvitt eftir

hilsen Alma Kristín :D

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 12:50:23 / Alma

Afmæli...afmæli...afmæli

Jæja þá er dagurinn runninn upp.... kellan bara 22 ára í dag :haha: og það fyrsta sem mamma segir í símann í morgunn er : Jæja Alma mín hvar kom hrukkan 8|

Fullt af fólki sem á afmæli....

  • 28. apríl....Til hamingju Kolfinna mín
  • 30. apríl... elsku Sigga mín 22 ára :D
  • 3. maí...Alda bekkjarsys 25 ára... til hamingju elskan :D
  • 6. maí... Víddi 27  ára... vá að verða þrítugur hehe :haha:
  • 8. maí..... Bjarni bekkjarbró  22 og Elísabeth 4... til hamingju :D
  • 11. maí. Jóhanna vinkona 22 ára... til hamingju :D
Hehe held að ég geti endalaust talið upp.... en jæja ætlaði bara að skella inn smá kveðjum elskurnar.....
Haraldur elskan mín er að bjóða mér í spa og síðan í dinner í kvöld :haha:
erum að flytja heim... hlakka til :haha:
heyrumst... Alma Kristín :D

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 14:30:10 / Alma

þolinmæðin þrautin vinnur

Jæja píps hér með held ég að bloggheimi Stínanna fari senn að ljúka...... nehh segi svona :lol: en samt í alvöru.... sumarið er alveg að koma og þá lætur maður sér nú ekki detta í hug að blogga, nema svona eina og eina færslu, OG SÍÐAN ER FÓLK ALVEG HÆTT AÐ KOMMENTA :evil:

En að öðru í bili... á fimmtudaginn bauð Haraldur minn mér og pabba sínum út að borða á Sigga hall og það var ekkert slor..... bara seðillinn tekinn á þetta, fimm rétta dinner og með því :D Maturinn þarna er ekkert eðlilega góður sjeise.... besti matur sem ég fæ fyrir utan allt ala mamma og síðan er ég nú með minn einkakokk hérna heima og það er snilld, allt sem hann gerir :haha::haha:

Úff bara tæpur mánuður í heimför, ekkert smá stressuð og spennt, get ekki beðið eftir að koma heim og sjá nýja húsið mitt og þá meina ég NÝJA, allt breytt, mjúka teppið mitt farið :cry: Verð samt að viðurkenna að ég á eftir að sakna stelpnanna í skólanum, algjör yndi... Alda mín þú verður bara að lauma þér með Svanhildi í júní :)

Hef ekki mikið meir að segja í bili.... letin nokkurn veginn tekin á þetta í dag, lágum upp í rúmi, síðan fór everton maðurinn minn að horfa á sína menn og síðan liggur leiðin í kolaportið að kaupa harðfisk mmmmmm!!! og síðan bara lærdómur sjibbíííí 8|

Bæ í bili og kommon, skiljiði eftir smá loppu.

Alma Kristín

 

p.s. Til hamingju VMA með að vinna LOKSINS Í SÖNGKEPPNINNI EFTIR VERÐSKULDAÐAN SIGUR SÍÐUSTU 3 ÁR :haha:


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 23:28:17 / Alma

HOME SWEET HOME

 

Halló allir saman..... ég er engan veginn að standa mig í blogginu núna en hverjum er ekki sama þegar maður er í páskafríi.... :D:D

Við Haraldur minn keyrðum norður eftir vinnu hjá mér á sunnudag og ætlum þokkalega að njóta þess að vera í langþráðu fríi, allt of mikið að gera þarna fyrir sunnan, erum bæði alveg á kafi þannig að sjibbíííí LOKSINS ER KOMIÐ FRÍ!!!!!!!!!! :haha:

Mjög stutt blogg, hef ekki mikið að segja............... Markmiðið er að liggja með tærnar upp í loftið og gera ekki neitt, nema hitta vini og ættingja og auðvitað fylgir alltaf smá páskadjamm með!!! :haha::haha:

GLEÐILEGA PÁSKA ALLIR SAMAN OG NJÓTIÐ ÞESS AÐ BORÐA PÁSKAEGG, ÞAÐ ÆTLA ÉG ALLAVEGA AÐ GERA HAHAHAHAHAHAHAHH

bÆÓ Í BILI......Alma Kristín í páskastuði 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 20:45:55 / Alma

Um allt og ekkert

 
Elsku besta Heiða mín, ég votta þér mína dýpstu samúð vegna pabba þíns.... ég hreinlega er orðlaus og er búin að vera dofin síðan ég frétti þetta en sárast var þó að heyra í þér þegar þú varst enn í Danmörku og ég gat ekkert gert, gat ekki einu sinni tekið utan um þig elskan mín..... Hlakka bara til að koma heim og faðma þig :cry:
Stórkostlegri mann hef ég ekki kynnst og hans verður sárt saknað :cry:
 
 
Þetta verður nú eitthvað ómerkilegt blogg hjá mér....Lífið gengur nánast sinn vanagang, skóli, vinna og eintóm leit af módelum.. er að verða nett pirruð á þessu, svoltið erfitt að vera í þessu fagi þegar maður þekkir takmarkað af liði hérna :^) en það þýðir nú ekki að kvarta, þetta er það sem ég vil gera þannig að..... bara að setja upp BROSIÐ :haha::haha:
 
 
Well well... jæja til að gleðja lítil hjörtu þá er ég með GÓÐAR FRÉTTIR.....allavega fyrir suma, veit að Anna mín brosir núna...... en þá er ég að flytja heim í maí baby, takk fyrir nett, hlakka frekar mikið til að koma á norðurlandið aftur, samt búið að vera gaman hér en hvað segjum við alltaf.... HEIMA ER BEST :D:D Þá kem ég líka nánast í glænýtt hús... jújú gömlu ákváðu að gera róttækar breytingar á húsinu og eru bara að snúa öllu á hvolf :$
 
 
Elsku Haraldur minn á afmæli á mánudaginn 12. mars og ég veit EKKERT hvað ég á að gefa honum.... hmmm kannski luma ég á einhverju hehe :haha: hehe gamli gamli.... aðeins eldri en ég og er mín bara nokkuð sátt við það :D
 
Jæja höfum þetta ekkert lengra núna, er að koma heim á fimmtudaginn, vildi að tilefnið væri annað en svona er þetta....
 
Elskiði friðinn og kyssið á kviðinn.... Alman kveður :):)

» 13 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 21:03:21 / Alma

JÚROVISION.... ég les í lófa þínum!!!

 

Það er náttúrulega ekki hægt annað en að blogga smá núna..... ég bara spyr... hver horfði EKKI á júró í gær???????? Ég er svoooo ánægð með framlag okkar í ár, ég gjörsamlega féll fyrir laginu í fyrsta skipti sem ég heyrði það.... :haha::haha:

LES Í LÓFA ÞÍNA......ER LAGIÐ OG EIRÍKUR HAUKSSON BACK IN ACTION 8)

Vá.... ég er eiginlega bara orðlaus, þetta er svo lag sem ég fíla í tætlur, ok veit alveg að líkurnar á að komast upp úr forkeppninni eru næstum engar, en þetta er líklegasta lagið til gera eitthvað, verð samt að viðurkenna það að mér fannst ótrúlega mörg góð lög, ótrúlegt en satt :D

Friðrik Ómar var að gera góða hluti, fannst hans lag geggjað líka, en outfittið ekki alveg að slá í gegn hjá Ölmunni hehe

Til hamingju bara allir saman sem kusu Eirík jeiii

tökum nú höndum saman og styðjum Eirík 10. maí hehe :D

 

Eeeeennn jæja búin að ná mér niðrá jörðina aftur og lífið gengur sinn vanagang ;) Mamma og pabbi búin að vera í borginni síðan á miðvikudag og það var nú svoltið sárt að horfa á eftir þeim í dag, en það er ekki nema 5 dagar í að mín elskulega systir kemur og verður hjá mér yfir helgina og helgina þar á eftir kemur hún aftur með kallinum... þannig að ég hef svo sem yfir engu að kvarta :D:D

Úff púff komin með annan síma, ekkert slor sá sími hehe.... djók!! ;) sjeise tveir símar á tveimur vikum.... þetta er skammarlegt :cry:

Jæja varð bara að koma með smá innlegg, verð að halda áfram að læra:!:

Til hamingju með daginn kvensur... vona að kallinn ykkar hafi gert ykkur ánægjulegan dag.... minn var svo elskulegur að fara í bakaríið í morgun og kom með svona glæsilega tertu heim til mín áður en við héldum bæði í vinnu.... TAAAAAKKKKK :haha::haha:

 

elskiði friðinn og kyssiði á kviðinn... Alman kveður 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 16:45:09 / Alma

DAGUR ELSKENDA

já ættingjar og vinir...... lífið er sko ekki alltaf sanngjarnt..... ég er svo reið, sár, bitur og ógeðslega brjáluð núna :^) Jújú staðreyndin er sú að minn elskulegi nýji sími er TÝNDUR!!!!!!!!! Hann er ekki orðinn 2 vikna gamall og það er bara eins og jörðin hafi gleypt hann :$ Við Haraldur minn ákváðum að vera ekki í skólastuði á mánudaginn og tókum daginn með ró... fórum bara að borða á mCdonalds og síðan að skoða bíla, dagurinn fór nú ekki í mikið meira en það og þegar heim var komið var enginn nýr sími með í för, BÚIÐ AÐ LEITA ÚT UM ALLT.... Í RUSLINU BTW!!!!! 

Þannig að ekki vera fúl ef ég svara ekki... hef engin númer og engan síma :cry::cry:

Læt vita þegar ég verð komin með síma og þá er bara að byrja aftur að safna númerunum sem maður er búinn að hafa í mörg ár... ohhh langar bara að grenja af mér andlitið :cry:

 

En jæja veit nú aldrei hvað ég á hafa í titil en fannst nú þessi alveg ágætlega við hæfi þar sem það er nú valentínusardagur í dag..... Éger ekki alveg að fíla þennan dag... kommon við erum með okkar eigin bóndadag og konudag, það er nú bara alveg yfirdrifið nóg, þoli ekki þegar það þarf að apa upp alla svona siði..... :evil:  Ekki langt í konudaginn stelpur mínar, á sunnudaginn skuluð þið láta mennina ykkar stjana svo við ykkur að þeir vita ekki hvað þeir eru búnir að koma sér útí... :haha: nei er nú bara að grínast, hafið það sem allra best... þetta er OKKAR DAGUR :D

Haraldur minn var módel hjá mér í skólanum í morgun og haldiði að kallinn sé ekki svona asskoti vel til fara um höfuðið núna..... orðinn smá dökkhærður og allur pakkinn bara, tókst vel í alla staði og hann bara nett ánægður með kelluna sína:haha::haha::haha::haha: 

Jæja er farin að taka til.. ma og pa að koma...... eins gott að hafa allt tipp topp :lol:  

 

Sæl að sinni..... Alma símalausa!!! ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 19:43:03 / Alma

Bloggmeistarinn :)

Aðeins pirruð núna, var búin að skrifa helling og síðan datt allt út...AARGGG %$#%# :^)

En allavega þá get ég ekki beinlínis sagt að ég sé heimsins besti bloggari, nenni þessu varla en kommon ég reyni þó :haha:
Jæja við hjúin fórum á norðurlandið góða síðustu helgi til að fara á Þorrablót á grenó og það er náttúrulega synd að sleppa því þannig að auðvitað lét Alman sig nú ekki vanta og tók gerpið mitt með mér :D Það tókst líka vel í alla staði og var þrususkemmtilegt, lappirnar hálf aumar eftir snúningana á dansgólfinu ;) Auðvitað kíkkaði ég nú smá út á föstudagskveldið líka með gellunum mínum Önnu og Hörpu, allir í stuði eins og alltaf á ak :haha:

Síðan gengur hversdagslífið sinn vanagang.... skóli og vinna, reyndar lítil vinna sem er reyndar hið besta mál... :) Reyndar ætlar djammdrottningin sjálf að skella sér á Sander Kleineberg 9. feb... það verður örugglega brjálað stuð, ekki annað hægt þegar Anna mín er með í för og tala nú ekki um kónginn sjálfan hann Harald minn hehe 8)

Fór í dag og keypti mér nýjan síma.....LOKSINS....:!::!::!: Minn gamli gjörsamlega búinn að gefa upp öndina og fólk að verða illa þreytt á að ná á mér, þar sem hann skellir stanslaust á og síðan heyrir aldrei neinn í mér og bara endemis bull og vitleysa :$

Ohhhhh sá líka svona geðbilaða kápu í dag og mig langar í og vantar..... eeeeennn því miður getur maður ekki leyft sér allt.... hmm samt alveg spurning um að leyfa sér svona einu sinni hehe :lol:

Jæja hef svo sem ekki frá meiru að segja í bili, er bara að drepa tímann meðan gerpið mitt er í vinnunni.... ætla nú reyndar kannski að taka kaffihúsið á þetta í kvöld með bekkjarsystrum mínum.. :D

Ný könnun!!!!!

Elskiði friðinn og kyssið á kviðinn....
Bless í bili.......Alman :D

» 20 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:34:33 / Alma

2006....nei 2007

Já þetta er alveg hreint með ólíkindum hvað tíminn líður hratt 8|

Ætla nú að byrja á að óska öllum gleðilegs nýs árs og takk æðislega fyrir það gamla :D

Jamm árið 2006 var nú bara þokkalega gott myndi ég segja, frekar í rólegri kantinum þó en margt gott gerðist. Ætli það sé ekki best að reyna að skella nokkrum línum inn um gamla góða árið.

Árið byrjaði nú á heljarinnar djammvertíðum hjá okkur Sunnu, stanslaust glens og grín. Fyrsta skiptið sem ég byrja nýtt ár á því að vera ekki í skóla, mjög skrítið fannst mér. Síðan fann Sunna nú prinsinn sinn, eða held að þau hafi fundið hvort annað, en ég var nú bara enn ein og stuðið minnkaði nú ekkert á okkur Stínunum. Við stelpurnar ákváðum að skella okkur í smá road trip til rvk og tjékka á mannlífinu þar og sú ferð gleymist seint, algjör snilld :D Þar rákumst við Sunna á þokkalega gaura að norðan og ekki datt mér í hug að annar þeirra ætti eftir að vera prinsinn minn :haha: Það allra besta á þessu ári var náttúrulega að ég kynntist honum Haraldi og þar sem hann bjó fyrir sunnan þá ákvað ég að láta drauminn minn rætast um að læra hárgreiðslu og flutti suður og við fórum að leigja. Eitt af því besta sem við gerðum í sumar var að við fórum í ferð til Hríseyjar sem var snilld, afslappandi, góður matur og auðvitað horfðum við á HM í fótbolta hehe :D En þetta var fyrsta árið mitt í langan tíma sem ég fór ekkert til útlanda :cry: bæti bara úr því á þessu ári....... en jamm held að þetta sé basically árið 2006 í hnotskurn:!::!:

Jamm og jæja, auðvitað rúllaði kellan upp prófunum og var bara með 9 og 10 :haha: kannski betra að sleppa þessu, ef ég drulla á mig á þessari önn :lol: ...... Jólin voru alveg frábær, mjög róleg og afslappandi, enginn Haraldur sem var ekki gott mál, en enn skemmtilegra þegar hann kom heim og by the way með fullt af gjöfum handa mér..TAAAKKKK :haha: Annars er ekki mikið í fréttum skólinn byrjaður og ég er HÆTT AÐ VINNA Í GALLUP....takk fyrir pent:!::!:

Kveð í bili, elskiði friðinn og kyssiði á kviðinn

Alma Kristín :P


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 20:40:21 / Alma

Stormur í aðsigi!!!!!

Úff hér sit ég ein heima við tölvuna og er að hlusta á óveðrið úti.... já HLUSTA 8| Mér er svo illa við svona hljóð að það er ekkert grín skal ég segja ykkur, búið að spá einhverjum hevy stormi og fólk varað við að vera á ferðinni, og ég sem ætlaði að fara og fá mér eitt stykki petsu :lol: spurning um að láta það bíða betri tíma :!::!:

Ég held að dæmið sé eitthvað að snúast við, Sunny kemur hér sterk inn en Alman er eitthvað að dala, kannski bara gott mál hehe ;) Ég hef nú kannski ekki mikið að segja núna..... 2 próf búin og bara eitt eftir vúhúúú, reyndar eina bóklega og erfiða prófið en þá verður dugnaðurinn bara að fara að segja til sín.... hmmm hóst hóst. Akkurat vika í dag þangað til ég lendi á víkinni mínni fögru....GRENIVÍK CITY :D:D En dííí eruði að grínast, þetta er náttúrulega ekkert eðlilegt, sko Sunna tekur þá afdrifaríku hugmynd að stinga af í sumar og ákveður að kanna borgina, og ég sit ein eftir, síðan þegar hún kemur aftur norður þá er ég alltí einu búin að taka upp á því að stinga af og feta í fótspor Sunnu, enn og aftur erum við aðskildar.... loksins hlakka ég til að koma heim í jólafrí og hanga með Stínunni minni en nei heiiiiii aldeilis ekki, þá tilkynnir hún mér það að hún fer suður væntanlega sama dag og ég kem norður.... ég bara spyr HVAÐ ER MÁLIÐ....??? erum reyndar alveg smá búnar að hlægja af þessu, ekki annað hægt :haha:

Úff þetta veður, Haraldur þurfti að fara í vinnuna og ég er hér ein... hmmmm:^) mér er alveg hætt að lítast á þetta en jæja verð bara að taka á honum stóra mínum :lol:  Á miðvikudaginn er sveinsprófsdagur eða eitthvað hjá Haraldi og öllum velkomið að fara og skoða..... (því miður kemst ég ekki sökum vinnu :cry: ) en ég verð bara að segja að allt dótið sem hann er búinn að kaupa og hanna og láta gera klárt fyrir sig er virkilega, virkilega flott, svooo stolt af honum og of course er grænn aðalliturinn hehehehehe :haha:

Þótt það sé mikil tilhlökkun og spenningur í gangi vegna heimferðar er kvíðinn og stressið þó eiginlega í meirihluta.... jújú það er víst út af því að Haraldur er að stinga af með fjölskyldunni til Kanarí um jól og áramót, jú það er örugglega gaman og allt það en ég get nú ekki sagt að ég hoppi hæð mína af ánægju :cry: ég verð bara í faðmi fjölskyldunnar og vina, það verður líka gaman en ég á eftir að sakna hans svoooo mikið, svoltið leiðinlegt að hugsa til þess að við getum ekki eytt neinu af fríinu okkar saman, við erum líka að tala um 3 VIKUR!!!! hmmm svoltið niðurdrepandi hjá mér, en svona er þetta bara, enn skemmtilegra þegar hann kemur heim aftur..... í JANÚAR btw!!!

Fokkiti fokk....einhverra hluta vegna verður þetta blessaða blogg alltaf lengra en maður ætlar sér. Jamm og Jæja nú er komið nóg og því kveð ég í bili með dynjandi óveðursþrumuhávaða í eyrunum:!::!::!:                 

Alman :)

Harpa mín.... þetta blogg er algjörlega skrifað fyrir þig, enjoy :haha:


» 19 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 23:25:25 / Sunna

Þetta er alltaf jafn gaman!

Hvað er betra en að blogga þegar maður á að vera að læra!! Ég er að aðeins að stelast af því ég á nenfnilega svoooooo mikið að vera að læra núna 8|

En frá mér er allt gott að frétta. Eftir tvær vikur verð ég hálfnuð með háskólann!! Ég gleðst ólýsanlega mikið við tilhugsunina. Þessi þrjú ár eiga án efa eftir að borga sig.

Ég er farin að hlakka gríðarlega til jólanna. Er sko komin með jólastjörnuna upp í gluggann. Ég og Víddi skreyttum líka smá á Grenivík um síðustu helgi og skrifuðum jólakort. Hehe erum við nokkuð að verða alveg klikk!! Svo kemur Alman mín líka norður um jólin!! Er sko farin að sakna hennar sjúklega mikið. Þetta bara gengur ekki svona og hana nú!! það er asnalegt að búa á höfuðborgarsvæðinu, allavega á meðan ég er á Ak 8) En það verður án efa gaman hjá okkur í jólafríinu :haha:

Ég má samt ekki hugsa of mikið um jólin strax. Þarf fyrst að afgreiða prófin. Ég fer í fyrsta prófið á mánudaginn og er búin 15.des þannig að Víddi ákvað að vera bara í borginni þessa helgina sem er ágætis ákvörðun (samt asnaleg) þar sem ég yrði ekki skemmtilegur félagsskapur. En núna er ég í sjálfsvorkunnarkasti og vantar hann til að vorkenna mér og fikta í hárinu á mér:!:

Eftir prófin er stefnan síðan tekin suður að vinna í Benetton fram að jólum.

ALLIR að svara!!

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

12. Besta minningin þín um mig?

13. Myndir þú gefa mér nýra?

14. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

15. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?

16. Getum við hist og bakað köku?

17. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

18. Talarðu eða hefurðu talað illa um mig?

19. Finnst þér ég vera góð manneskja?

20. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

21. Finnst þér ég vera aðlaðandi?

22. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?

23. Í hverju sefurðu?

24. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

25. Ef við ættum einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera?

26. Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Pís át 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 18:51:42 / Sunna

Ég bara verð

Jæja það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast. En það skiptir ekki máli.

Ég fór semsagt í enn eina vísindaferðina um síðustu helgi og farið var í KEA. það var að sjálfsögðu mjög fróðlegt og ég verð að segja að ég var allt önnur manneskja þegar ég labbaði þaðan út, og það sama á klárlega við um hana Helgu!! Þetta hafði rosaleg áhrif á okkur en ég veit ekki hvort það hafi verið til hins betra eða verra. Þið getið dæmt um það sjálf. Þetta er allavega útkoman!! bamm bamm

 

Vonum að þetta sé ekki varanlegt!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:30:41 / Alma

Nýtt blogg!!!!!!

Heilt og sælt veri fólkið...... jæja með réttu þá ætti nú hin Stínan að blogga núna en ætli það verði nokkuð úr því á næstunni :lol: þannig að Alman ákvað þá að skella inn nokkrum línum!!! Úff.... jæja eitt og annað er nú á döfinni og eitthvað er búið að gerast síðan síðast. Gerpið mitt er nú loksins farinn að geta unnið eitthvað, tekur þessu bara rólega, nokkrar vaktir annað slagið, síðan fer nú allt á fullt þegar jólahlaðborðin byrja hjá Sigga... síðan getur hann nú farið í ræktina garpurinn, en ætli hann þurfi ekki samt að fara í aðra aðgerð út af hendinni:S

Helvítans prófin eru að nálgast og ekki get ég nú neitað því að nett stress er farið að gera vart við sig.... fyrir tæpri viku síðan heimsótti ég bráðamóttöku landspítalans með þessa agalegu hjartaverki.... ekki gott mál get ég sagt ykkur :( eftir tæpa 3 tíma í hjartalínuritum og rugli þá fékk ég að vita að ég væri með mjög góðan hjartslátt og allt í key... THANK YOU VERY MUCH:!::!::!: össss og ég sem ég hélt að ég væri basically að deyja.... nei nei segi það nú ekki, þjáist af kviðaköstum sem eru ósjálfráð og fæ verki fyrir hjartað og á erfitt með andardrátt.... ekki gaman!!!!

En sjibbíííí mánuðurinn búinn og það þýðir bara eitt..... ÚTBORGUN :haha: mikið asskoti er gaman að fá útborgað, þótt megnið fari í leigu, og eitthvað shit, en kommon maður má nú leyfa sér smá :lol:

Við Haraldur skelltum okkur í nýja IKEA á mán... og mér finnst það geggjað flott, ohh alltaf get ég misst mig þar, en hann hafði nú góða stjórn á kellingunni ;) Mesta snilldin er að sleppa við þessa vibbalegu svita-pylsu stybbu sem tók alltaf á móti manni í gamla IKEA.... djöf... viðbjóður :evil:

Jæja ble ble... held að þetta sé að verða asskoti ágætt bara..... góð helgi framundan, Sunnan mín að koma um helgina, sjibbííí og ætli það verði ekki út að borða pakkinn tekinn á þetta, snilld :D

Fínt að frétta, sakna norðursins... alltof fokking kalt hérna, hvað er málið með það 8|8|8| well well... farin að læra og þrífa.... hmmm (horfa á imbann með öðrum orðum) ;)

Jæja allir síðan að skilja eftir sig svo sem eina rispu á síðunni hahaha. hohoho. híhíhí. hehehe..... váá svefngalsi eða eitthvað, fokkiti fokk

Bið að heilsa í bili, kátar kveðjur úr holtinu. Stínan :haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 16:53:04 / Alma

FOOTLOOSE..... magnað helvíti :)

Úff ég held bara að þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef eitthvað að segja.... for real :D Jæja þarsíðustu helgi kom elsku Annan mín í heimsókn til mín og var alla helgina, algjör snilld, fórum á footloose, shit hvað þetta var magnað, algjör snilld. Þorvaldur Davíð klikkar ekki og náði nú að heilla kvenþjóðina upp úr skónum, hóst Anna hóst.... shit í alvöru þá var ég að þurrka upp slef á gólfinu heima eftir leikritið og allan sunnudaginn hehe djók, :haha: Mæli eindregið með FOOTLOOSE:!::!::!: Síðan fórum við að sjálfsögu í búðarráp eins og okkur einum er lagið og fórum á pizza hut og tókum að sjálfsögðu eitt gott djamm, og líka gott spjall..... takk elsku Anna mín :D

Jæja er að kafna í vinnu og þreytan er sko alveg búin að segja til sín síðustu vikur og er að gera út af við mig í orðsins fyllstu :cry: Er ekki búin að ná neinum svefni að ráði en þetta fer nú að breytast eftir þessa viku, vona ég :lol:

En þessi helgi var reyndar algjör snilld þótt að ég var að vinna ALLA helgina.... elsku systir mín og hennar kall og vinir þeirra kíktu í borg óttans og fór ég með þeim í bíó á föst á my super ex girlfriend, ágætis ræma, eitthvað súperman wannabe, frekar mikið bull samt :) En á laug þá fór ég með Haraldi og bræðrum hans og mökum og vini þeirra út að borða á Madonnu, algjör snilld, redwine með og alles, mikið hlegið og skemmt sér..... síðan lá sko leiðin á BRODWAY Á MAGNA OG DILÖNU thank you very much:!::!::!::!: djöfull slógu þau í gegn, skemmti mér konunglega en var nú samt komin heim og uppí rúm um 4 minnir mig.... Vá hvað Dilana er fokking flott, þau Magni eru geggjuð saman... í söngnum meina ég þá, má alveg segja að Magni er búinn að meika það feitt á klakanum núna.... ble ble ble búin að skrifa alltof mikið

Kem heim eftir rúma viku, hlakka svo ógeðslega mikið til að komast í matinn hennar mömmu og hitta vini og fjölskylduna jeiiii rock on :haha:

Jæja er hætt í bili, kærlig hilsen, elskiði friðinn og kyssið á kviðinn :haha:

 

Alma múmínsnáði kveður :D


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan